Það er alltaf fjör á Lettie Stuart Pottery!

25.01.21

Í síðustu viku kláraðist síðasta vikan af 18 mánaða keramik skólanum. Nemendurnir hafa klárað lokaprófin sín og notuðu síðustu vikuna til að klára verkin sem þau munu sína í útskriftinni í febrúar. Þetta er stór áfangi fyrir keramik verkstæðið að sjá fyrsta árganginn útskrifast og verður spennandi að sjá framhaldið. Við hjá Aurora erum afar stolt að hafa gert skólann að veruleika, jafnvel þótt að heimsfaraldur hafi sett smá strik í reikninginn.

Í síðustu viku mætti einnig Peter Korompai, leirkerasmiður frá Ungverjalendi í sinni þriðju ferð til Sierra Leone. Hann mun eyða næstu 3 mánuðum á keramikverkstæðinu og mun hjálpa til við rannsóknir á mismunandi leir og öðrum efnum og hjálpa verkstæðinu að skipuleggja sig fyrir framtíðina.

Allir fundir eru núna haldnir utandyra til að tryggja amk. 1 metra fjarlægð!