Styrkveiting frá UTN fyrir námskeiðahaldi

23.05.22

Aurora velgerðasjóður hlaut nú nýlega styrk fyrir verkefninu Valdefling ungmenna með þjálfun í upplýsingatækni og viðskiptarekstri úr sjóði Utanríkisráðuneytisins sem styrkir félagasamtök í þróunarsamvinnu. Nemur upphæð styrksins rúmum fjórum milljónum íslenskra króna. Eins og segir á vef Utanríkisráðuneytisins er markmiðið með samstarfi við félagasamtök og fyrirtæki í þróunarsamvinnu að draga úr fátækt, bregðast við neyðarástandi og styðja við atvinnusköpun og sjálfbæran vöxt í þróunarríkjum.

Aurora mun nota styrkinn til áframhaldandi námskeiðahalds með þessu nýja verkefni sem miðar að því að efla ungt fólk á sjálfbæran hátt. Verkefnið samanstendur af 16 mismunandi námskeiðum sem verða allt frá einum degi og yfir nokkurra vikna tímabil og með skýran fókus á að skapa atvinnutækifæri og efla hæfni ungs fólks í Sierra Leone. Viðfangsefni námskeiðanna var ákveðið eftir að þarfagreining hafði verið framkvæmd og ljóst var að bæta þurfti við þekkingu á og þjálfun í upplýsingatækni. Við hjá Aurora erum spennt að takast á þetta verkefni og efla það starf sem við höfum staðið fyrir með námskeiðahaldi og við að efla og þjálfa ungt fólk.