Kraumsverðlaunahafarnir 2021!

15.12.21

BSÍ, Ekdikēsis, Eva808, Inspector Spacetime, Skrattar, Sucks to be you, Nigel og Tumi Árnason hlutu Kraumsverðlaunin árið 2021 og Aurora velgerðasjóður óskar þeim innilega til hamingju!

Kraumsverðlaunin voru veitt í dag í fjórtánda sinn. Í fyrra fór afhendingin fram utandyra og í búðarglugga á Laugveginum vegan Covid faraldursins en í ár var verðlaunaafhendingin haldin í Mengi.

Sjö listamenn og hljómsveitir hljóta í ár Kraumsverðlaunin fyrir plötur sínar. Þetta er í fjórtánda sinn sem verðlaunin eru afhent en meðal þeirra listamanna sem hlotið hafa Kraumsverðlaun frá því þau voru fyrst veitt árið 2008 má nefna Hildi Guðnadóttur, Daníel Bjarnason, Hjaltalín, Lay Low, FM Belfast, Retro Stefson, Moses Hightower og Sóley.

Kraumsverðlaunin eru veitt fyrir þær íslensku hljómplötur sem þykja hafa skarað fram úr á árinu hvað varðar gæði, metnað og frumleika. Mikil fjölbreytni einkennir verðlaunahafa ársins sem koma úr ýmsum áttum íslensk tónlistarlífs. Verðlaunaplöturnar spanna m.a. litróf popp og öfgarokks, pönk og jazz, house og danstónlistar.

Kraumsverðlaunin árið 2021 hlutu:

BSÍ – Stundum þunglynd …en alltaf andfasísk

Ekdikēsis – Canvas Of A New Dawn

Eva808 – Sultry Venom

Inspector Spacetime – Inspector Spacetime

Skrattar – Hellraiser IV

Sucks to be you, Nigel – Tína blóm

Tumi Árnason – H L Ý N U N

 

Kraumsverðlaunahafar ársins stilltu sér upp fyrir mynd á verðlaunaathöfninni. 

 

Inspector Spacetime úr hópi verðlaunahafa ársins fluttu tónlist á athöfninni.

Þetta er í fyrsta sinn frá árinu 2013, og annað sinn í sögu Kraumsverðlaunanna, sem sjö listamenn og hljómsveitir hljóta verðlaunin. Hefð er fyrir því að sex plötur séu verðlaunaðar, en dómnefndin í ár sá hins vegar ástæðu fyrir því að verðlauna sjö plötur í ár – sem er til marks um þá miklu grósku sem einkennir íslnenskt tónlistarlíf í dag.

Kraumsverðlaunum er ætlað að kynna og styðja við plötuútgáfu íslenskra listamanna og hljómsveita. Verðlaunin eru ekki bundin ákveðinni tónlistarstefnu og þeim fylgja engir undirflokkar. Alls hafa rúmlega sjötíu listamenn og hljómsveitir hlotið verðlaunin fyrir plötur sínar, flestir snemma á ferli sínum.

Verðlaunaathöfnin átti sér stað í Mengi.

Kraumslistinn og Kraumsverðlaunin eru valin af níu manna dómnefnd sem skipuð er fólki með margvíslega reynslu af því að fjalla um, spila og vinna með íslenska tónlist í fjölmiðlum og á öðrum vettvangi. Dómnefndina í ár skipuðu þau Árni Matthíasson (formaður), Arnar Eggert Thoroddsen, Helga Þórey Jónsdóttir, Lovísa Rut Kristjánsdóttir, María Lilja Þrastardóttir, Óli Dóri, Rósa Birgitta Ísfeld, Trausti Júlíusson og Þorbjörg Roach Gunnarsdóttir.

Guðbjörg from KerRvk is here!

Guðbjörg from KerRvk is here!

The center busses with life everyday, and the humor and happiness in the air are very tangible. Guðbjörg is here! Guðbjörg Káradóttir is the founder of Ker, a brand based in Reykjavik Iceland. All items by Ker are designed and handmade on the wheel with passion and...

Equipping the youth of Sierra Leone for the age of digitization

Equipping the youth of Sierra Leone for the age of digitization

On Friday the 16th of December we got together with Isata Jallo. Isata Jallo was a member of  Aurora Impact’s second Cohort. We decided to meet at the launch of Freetown design and creative art network, a collaborative project between Freetown and Milan...

The power of photography

The power of photography

  Hickmatu is a young inspiring Sierra Leonean photographer, we got to know Hickmatu when she joined Aurora Impact's 3rd Cohort back in 2020. We have kept a close eye on her since then, and it has been inspiring to say the least, to see the beauty she has created...