Aurora og Mengi í samstarf

15.06.20

Aurora og Mengi hafa nýlega skrifað undir samstarfssamning til tveggja ára. Mengi er fjölnota viðburðarými á Óðinsgötu 2 sem rekið er af listamönnum og hefur skipað sér sess sem mikilvægur vettvangur fyrir listviðburði af ýmsum toga. Mengi er ekki rekið í hagnaðarskyni heldur er um að ræða hugsjónafélag þar sem tilgangurinn er að stuðla að nýsköpun og grasrót og hlúa að arfleifð skapandi lista, hugsunar og samstarfs.

Aurora mun styrkja Mengi næstu tvö árin og mun Mengi hýsa nokkra viðburði á vegum Auroru á sama tímabili.