Hæg breytileg átt er nýtt verkefni Hönnunarsjóðs Auroru

15.03.13

Hönnunarsjóður Auroru kynnti á HönnunarMars nýtt verkefni á sviði byggða- og íbúðaþróunar.   Hugmyndin er að efna til hugmyndavettvangs, þar sem einblínt verður á að vinna þverfaglega og gefa ungum hönnuðum, arkitektum, tæknimenntuðum einstaklingum og hugvísinda- og raunvísindafólki tækifæri til að mynda þverfagleg teymi til að leysa húsnæðisþraut framtíðarinnar.  Verkefnið er í mótun og hefur Hönnunarmiðstöð, fulltrúar Reykjavíkurborgar og Samtaka Iðnaðarins lýst sig reyðubúna til samstarfs.  Auglýst verður eftir þátttakendum í verkefnið á næstunni og það kynnt nánar.  Sjá nánar á heimasíðu Hönnunarsjóðs Auroru