Kraumslistinn 2010

22.12.10

Kraumslistinn – árleg plötuverðlaun Kraums tónlistarsjóðs til þeirra verka í íslenskri plötuútgáfu sem þótt hafa framúrskarandi og spennandi á árinu – var kynntur þriðja árið í röð miðvikudaginn 22. desember. Árni Matthíasson, formaður dómnefndar, kynnti þar niðurstöðu dómnefnar um verðlaunaplöturnar, sem líkt og síðustu tvö ár eru sex talsins fyrir árið 2010. Auk þess léku þau Ólöf Arnalds og hljómsveitin Ég lög af plötum sínum sem báðar eru á Kraumslista ársins.

Kraumslistinn 2010 – Eftirtalda plötur hljóta verðlaun

Apparat Organ Quartet, Daníel Bjarnason, Ég, Jónas Sigurðsson, Nolo og
Ólöf Arnalds eru á Kraumslistanum 2010 og hljóta plötuverðlaun Kraums.

Þeir titlar sem hljóta plötuverðlaun Kraums hljóta stuðning frá Kraumi í formi plötukaupa og kynningu á verðlaunaplötunum á erlendum vettvangi. Samtals hafa nú 60 hljómplötur verið tilnefndar til verðlaunanna og lent á úrvalslista Kraumslistans og 12 hljómplötur – frá flytjendum á borð við Hjaltalín, Huga Guðmundsson, Ísafold kammersveit, Agent Fresco og FM Belfast – komist á lokalista Kraumslistans árin 2008-2010.

Val dómnefndar Kraumslistans, bæði hvað varðar tilnefningar og verðlaunaplötur, kemur oft á óvart og þar leynast oft hljómplötur sem með valinu fá verðskuldaða athygli.

Óhætt að segja að árið í ár hafi verið öflugt hvað plötuútgáfu varðar, enda fjölmargir spennandi titlar sem ekki komast á úrvalslista Kraumslistans fyrir árið 2010.

Kraumslistinn
Kraumslistanum (stundum kölluð Kraumsverðlaun) er ætlað að styðja við plötuútgáfu íslenskra hljómsveita og listamanna – með því að styðja og vekja sérstaka athygli á því sem er nýtt og spennandi – og þeim verkum sem skara fram úr í gæðum, metnaði og frumleika. Kraumslistinn er ekki bundinn neinni ákveðinni tónlistarstefnu og honum fylgja engir undirflokkar. Það er von aðstandenda Kraumslistans að valið veki athygli á flottri og fjölbreyttri íslenskri plötuútgáfu, þegar jólagjafaflóðið er við það að skella á, og listamenn reiða sig hvað mest á plötusölu.

Verðlaun
Kraumur mun styðja við þær plötur sem dómnefnd velur á Kraumslistann, og jafnframt auka við möguleika listamannanna bakvið þær til að koma verkum sínum á framfæri utan landsteinana, með því að kaupa ákveðinn fjölda af plötunum (100 stk hver plata árin 2008 og 2009) og dreifa til ýmissa starfsmanna tónlistarbransans erlendis (tónlistarhátíðir, plötuútgáfur, umboðsskrifstofur o.s.frv.), í samvinnu við Útflutningskrifstofu íslenskrar tónlistar (ÚTÓN).