Fyrri úthlutun Hönnunarsjóðs Auroru 2011

23.03.11

Bóas Kristjánsson, HAF, Uppruni, saga og þróun bókstafsins „ð“ fá ásamt fleiri spennandi verkefnum styrk í rúmlega 11 milljón króna úthlutun Hönnunarsjóðs Auroru.

Sjóðurinn hefur leitast við að styrkja framúrskarandi hönnuði með heilsteypta viðskiptahugmynd og skýra framtíðarsýn. Að þessu sinni bárust 80 umsóknir af öllum sviðum hönnunar, sem er mesti fjöldi umsókna sem sjóðnum hefur borist hingað til. Samhliða auknum fjölda umsókna eru einnig aukin gæði þeirra merkjanleg. Hönnunarsjóður Auroru úthlutaði að þessu sinni 11.580.000 kr. til hönnuða og arkitekta til verkefna á sviði grafískrar hönnunar, fatahönnunar, matarhönnunar, vöruhönnunar og arkitektúrs.
Úr fréttatilkynningu;
Að þessu sinni fá þrír aðilar framhaldsstyrki til frekari eflingar verkefna sinna, sem er í takt við þá stefnu Hönnunarsjóðsins að fylgja eftir völdum verkefnum þannig að sá árangur megi fremur nást sem viðkomandi hönnuður stefnir að. Þetta eru þeir Bóas Kristjánsson með fatamerki sitt 8045, Hafsteinn Júlíusson með vörumerki sitt HAF og Charlie Strand með bókina Icelandic Fashion Design sem kemur út í sumar. Öll eiga þessi verkefni sameiginlegt að ötullega hefur verið unnið í þeim frá fyrri styrkveitingum.
Hönnunarsjóðurinn styrkir í fyrsta skipti Anton Kaldal, Gunnar Vilhjálmsson og Steinar Farestveit með rannsóknarverkefni sem kafar djúpt í uppruna, sögu, og þróun bókstafsins „ð“, sem er þýðingarmikill hluti af þjóðararfi Íslendinga. Rannsóknin verður tekin saman með útgáfu bókar. Arkitektastofan KRADS með verkefni sitt PLAYTIME, sem er farandvinnustofa ætluð nemum í arkitektúr, þróuð í samvinnu við danska leikfangaframleiðandann LEGO. Sruli Recht fatahönnuður með nýja herrafatalínu sína og Auður Ösp Guðmundsdóttir, Embla Vigfúsdóttir Katarina Lötzsch og Robert Peterssen með matarhönnunarverkefnið “ Pantið áhrifin” en það verkefni fékk Nýsköpunarverðlaun Forseta Íslands á dögunum.
(ítarefni um hönnuðina og tenglar)
Auk þessa tekur Hönnunarsjóður Auroru áfram þátt í uppbyggingu HönnunarMars Hönnunarmiðstöðvar Íslands og styrkir í því tilliti gerð myndbanda sem heimild um hátíðina og gerir Hönnunarmiðstöð kleift að bjóða hingað erlendum blaðamönnum.
Hönnunarsjóður Auroru hefur styrkt hönnuði til starfsnáms síðustu ár en þetta er í fyrsta skipti sem styrkirnir eru veittir til starfsnáms erlendis. Styrkina hljóta Birna Geirfinnsdóttir sem fær styrk til starfsnáms hjá Fraser Muggeridge Studio í London, sem er í eigu Fraser Muggeridge og Björgvin Friðgeirsson til að starfa hjá “Soup” í Kaliforniu, sem er í eigu John Bielenberg margverðlaunaðs grafísks hönnuðar.
Um er að ræða fyrstu úthlutun úr sjóðnum á þessu ári, en þá sjöttu frá því Hönnunarsjóðurinn hóf starfsemi sína í byrjun árs 2009. Aftur verður úthlutað úr sjóðnum á haustmánuðum 2011.

Guðbjörg from KerRvk is here!

Guðbjörg from KerRvk is here!

The center busses with life everyday, and the humor and happiness in the air are very tangible. Guðbjörg is here! Guðbjörg Káradóttir is the founder of Ker, a brand based in Reykjavik Iceland. All items by Ker are designed and handmade on the wheel with passion and...

Equipping the youth of Sierra Leone for the age of digitization

Equipping the youth of Sierra Leone for the age of digitization

On Friday the 16th of December we got together with Isata Jallo. Isata Jallo was a member of  Aurora Impact’s second Cohort. We decided to meet at the launch of Freetown design and creative art network, a collaborative project between Freetown and Milan...

The power of photography

The power of photography

  Hickmatu is a young inspiring Sierra Leonean photographer, we got to know Hickmatu when she joined Aurora Impact's 3rd Cohort back in 2020. We have kept a close eye on her since then, and it has been inspiring to say the least, to see the beauty she has created...