Ný álma við barnadeild héraðssjúkrahússins í Mangochi, Malaví.

06.08.09

Eins og fram hefur komið styrkir Aurora velgerðarsjóðurinn byggingu nýrrar álmu við barnadeildina við héraðssjúkrahúsið í Mangochi héraðið í Malaví.

Eins og fram hefur komið styrkir Aurora velgerðarsjóðurinn byggingu nýrrar álmu við barnadeildina við héraðssjúkrahúsið í Mangochi héraðið í Malaví.
Fyrir rúmu ári síðan hófust byggingaframkvæmdir  á nýju álmunni við barnadeildina en þar er gert ráð fyrir  rúmum fyrir 36 börn.
Í álmunni er opin deild, gjörgæsludeild, nýburadeild og loks einangrunardeild sem er einkum notuð fyrir kóleru.
Þessi bætta aðstaða er á vissan hátt bylting í heilbrigðisþjónustu á svæðinu og eru miklar vonir bundnar við barnadeildina.
Það stóð til að framkvæmdum mundi ljúka í árslok 2008 en vegna óviðráðanlegra orsaka, s.s. óvenju langt og mikið regntímabil og erfiðara gekk fyrir verktakann að nálgast aðföng en gert var ráð fyrir lauk byggingu álmunnar ekki fyrr en í maí síðastliðnum.
Jafnframt því að byggja þessa nýju álmu styrkti sjóðurinn framkvæmdir á lagfæringu á öllu skólpi við núverandi byggingar spítalans.
Meðfylgjandi eru myndir frá nýju álmunni, íbúar svæðisins eru afar þakklátir fyrir framtakið og aðstaða sem þessi getur skipt sköpum í lífi barnanna í héraðinu.
Það er að frumkvæði Sigurðar Guðmundssonar og konu hans Sigríðar Sveinbjörnsdóttur að ráðist var í verkefnið en þau hjónin unnu á svæðinu  og þekkja því vel þörfina, en jafnframt hverju hægt er að áorka með nýju barnadeildinni.

Aurora Foundation third ICT for Beginners Course: A Remarkable Success

Aurora Foundation third ICT for Beginners Course: A Remarkable Success

We are thrilled to share the remarkable outcome of our latest ICT for Beginners course, which concluded on September 6th. Hosted at the Aurora office training center, this two-week program saw exceptional participation and success. Starting on August 26th, eager young...

Successful compelition of Marketing Bootcamp for UNDP’s Growth Accelerator Programme

Successful compelition of Marketing Bootcamp for UNDP’s Growth Accelerator Programme

                                                                                                                                                                                          We are thrilled to share the success of our recent three-day Marketing Bootcamp,...