Til hamingju vinningshafar Kraumsverðlaunanna 2018!

12.12.18

Við óskum handhöfum Kraumsverðlaunanna 2018 hjartanlega til hamingu!!

Auður – Afsakanir
bagdad brothers – JÆJA.
Elli Grill – Pottþétt Elli Grill
GDRN – Hvað ef
Kælan Mikla – Nótt eftir Nótt
ROHT – Iðnsamfélagið og framtíð þess

Þetta er í ellefta sinn sem Kraumur tónlistarsjóður Auroru
stendur fyrir afhendingu Kraumsverðlaunanna fyrir þær íslensku hljómplötur sem þykja hafa skarað fram úr á árinu hvað varðar gæði, metnað og frumleika.

Kraumsverðlaunin eru ekki bundin ákveðinni tónlistarstefnu og þeim fylgja engir undirflokkar. Allar útgáfur íslenskra listamanna eru gjaldgengar til verðlaunanna – hvort sem þær koma út á geisladisk, vínyl eða á netinu.

Alls hafa 57 hljómsveitir og listamenn hlotið Kraumsverðlaunin frá því þau voru fyrst veitt árið 2008. Frekari upplýsingar um Kraumsverðlaunin og fyrri verðlaunhafa má finna hér: http://kraumur.is/forsida/kraumsverdlaunin/

Greinilegt er að mikil gróska er í íslensku tónlistarlífi hvað útgáfurstafsemi varðar í ár, enda fór dómnefndin í gegnum 343 íslenskar plötur og útgáfur sem komu út á árinu við val sitt á Kraumsverðlaununum 2018.

:::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::::

DÓMNEFND
Kraumslistinn og Kraumsverðlaunin eru valin af tólf manna dómnefnd sem skipuð er fólki sem hefur margvíslega reynslu af því að fjalla um, spila og vinna með íslenska tónlist í fjölmiðlum og á öðrum vettvangi. Dómnefndina í ár skipa; Árni Matthíasson (formaður), Andrea Jónsdóttir, Anna Ásthildur Thorsteinsson, Alexandra Kjeld, Arnar Eggert Thoroddsen, Benedikt Reynisson, Birna María Másdóttir, Helga Þórey Jónsdóttir, Jóhann Ágúst Jóhannsson, Sandra Barilli, Trausti Júlíusson og Óli Dóri.