Aurora fjármagnar skólamáltíðir í Bombali district

08.03.18

Í febrúar skrifaði Aurora undir samning við Swiss – Sierra Leone Development Foundation um að styrkja samtökin til þess að nemendur í heimavistarskólanum í Magbenteh geti fengið skólamáltíðir út þetta skólaár.

Skólinn var stofnaður árið 2016 og fljótt kom í ljós að gífurleg þörf var á að bjóða upp á smáltíðir fyrir börnin. Mörg þeirra mæta daglega til skóla án þess að hafa fengið að borða. Það setur mark á skólastarfið þar sem slíkt dregur bæði úr námsgetu og einbeitingu.

Lögð verður áhersla á að máltíðirnar innihaldi nægilegt magn vítamína og steinefna, fitu og prótíns til að fullnægja næringarþörf nemendanna.

Vannæring er landlægur vandi meðal barna í Sierra Leone, en langvarandi næringarskortur var greindur hjá 30% barna yngri en 5 ára í landinu, í rannsókn sem gerð var árið 2014 af Matvælastofnun Sameinuðu þjóðanna.

Skólinn er staðsettur í Bombali héraði í Sierra Leone og eru nemendur skólans börn úr fátækustu þorpum svæðisins. Mörg þeirra urðu munaðarlaus í kjölfar ebólufaraldarins sem geysaði á svæðinu á árunum 2014–2016.