Aurora velgerðasjóður tekur þátt í söfnun Hrossaræktar.is fyrir Neistann og Kraft

15.04.16

Aurora velgerðasjóður lagði 5 milljónir króna tilí söfnunar Hrossaræktar.is til styrktar Neistanum, styrktarfélags hjartveikra barna, og Krafts, stuðningsfélags ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein. Styrkurinn var afhentur laugardaginn 9. apríl í miðri Stóðhestaveislu sem fram fór í Samskipahöllinni. Söfnuninni var hrint af stað þetta laugardagskvöld og mun hún standa út júní. Heildarupphæðin verður síðan afhent á landsmóti hestamanna í júlí.
Framlag Auroru í þessa söfnun er í minningu Einars Oder Magnússonar, hestamanns, sem lést á síðasta ári. Þar að auki mun Aurora velgerðasjóður leggja fram krónu á móti hverri krónu sem safnast á næstu vikum, allt að 4 milljónum króna.