Kraumslistinn 2011

16.12.11

ADHD – Lay Low – Reykjavík – Samaris – Sin Fang og Sóley eiga verðlaunaplötur á Kraumslistanum 2011

Kraumslistinn 2011, árleg plötuverðlaun Kraums tónlistarsjóðs, var kynntur í dag. Á listanum er að finna sex plötur sem bera þess merki að mikið hefur verið í þær lagt, að hér eru verk eftir vaxandi og leitandi listamenn. Plöturnar sem skáru framúr og skipa listann eiga það sameiginlegt að vera frumlegar, spennandi og skemmtilegar en 20 plötur voru tilnefndar til verðlaunanna. Það var ekki auðvelt að gera upp á milli allra þeirra góðu platna sem skipuðu listann og komu út á árinu en á því liggur enginn vafi að tónlistarárið 2011 var gjöfult og gott.
Árni Matthíasson, formaður dómnefndar, tilkynnti niðurstöðu um val verðlaunaplatna sem líkt og síðustu tvö ár eru sex talsins. Afhending verðlaunanna fór fram í húsnæði Kraums tónlistarsjóðs að Vonarstræti 4b.
Kraumslistinn 2011 – Verðlaunaplötur
ADHD – ADHD2
Lay Low – Brostinn Strengur
Reykjavík! – Locust Sounds
Samaris – Hljóma Þú (ep)
Sin Fang – Summer Echoes
Sóley – We Sink
Kraumslistanum (stundum kölluð Kraumsverðlaun) er ætlað að styðja við plötuútgáfu íslenskra hljómsveita og listamanna – með því að styðja og vekja sérstaka athygli á því sem er nýtt og spennandi – og þeim verkum sem skara fram úr í gæðum, metnaði og frumleika. Kraumslistinn er ekki bundinn neinni ákveðinni tónlistarstefnu og honum fylgja engir undirflokkar. Það er von aðstandenda Kraumslistans að valið veki athygli á flottri og fjölbreyttri íslenskri plötuútgáfu, þegar jólagjafaflóðið er við það að skella á, og listamenn reiða sig hvað mest á plötusölu.
Verðlaun
Kraumur mun leggja metnað við að styðja alla þá titla sem valdir eru á Kraumslistann, frekar en að einblína á eina einstaka verðlaunaplötu. Sjóðurinn mun styðja við Kraumslistaplöturnar og jafnframt auka við möguleika listamannanna bakvið þær til að koma verkum sínum á framfæri erlendis með því að kaupa ákveðinn fjölda af plötunum og dreifa þeim til ýmissa starfsmanna tónlistarbransans erlendis (tónlistarhátíðir, plötuútgáfur, umboðsskrifstofur o.s.frv.).
Í dómnefnd Kraumslistans 2011 sátu:
Alexandra Kjeld, Andrea Jónsdóttir, Anna Andersen, Arnar Eggert Thoroddsen, Arndís Björk Ásgeirsdóttir, Árni Matthíasson, Benedikt Reynisson, Berglind María Tómasdóttir, Egill Harðarson, Eldar Ástþórsson, Elísabet Indra Ragnarsdóttir, Helena Þrastardóttir, Helga Vala Helgadóttir, Hildur Maral Hamíðsdóttir, Höskuldur Daði Magnússon, Kamilla Ingibergsdóttir, Ólafur Páll Gunnarsson, Ómar Eyþórsson, Trausti Júlíusson og Þorkell Máni Pétursson
Kraumslistinn 2010 – Verðlaunaplötur

Kraumslistinn 2009 – Verðlaunaplötur
Kraumslistinn 2008 – Verðlaunaplötur
Markmið Kraumslistans