Framúrskarandi hönnuðir fá úthlutað 11 milljónum úr Hönnunarsjóði Auroru

27.05.09

Þann 20.maí síðastliðinn fór fram fyrsta úthlutun úr Hönnunarsjóði Auroru til íslenskra hönnuða. Veittir voru sjö styrkir til hönnuða samtals 11 milljónir króna og tveggja samstarfsverkefna sjóðsins, samtals 1,5 milljónir króna. Sjóðurinn var stofnaður fyrr á árinu af Auroru velgerðarsjóði.

Þann 20.maí síðastliðinn fór fram fyrsta úthlutun úr Hönnunarsjóði Auroru til íslenskra hönnuða. Veittir voru sjö styrkir til hönnuða samtals 11 milljónir króna og tveggja samstarfsverkefna sjóðsins, samtals 1,5 milljónir króna. Sjóðurinn var stofnaður fyrr á árinu af Auroru velgerðarsjóði. Nánar á www.honnunarsjodur.is

Sjóðnum er ætlað að styðja við framúrskarandi hönnuði, efla grasrótarstarf í hönnun og vera vettvangur hugmynda og skapandi hugsunar í íslenskri hönnun. Með þessu leggur sjóðurinn sitt af mörkum til eflingar nýsköpunar og sprotastarfsemi á Íslandi.
Um þessar mundir stendur yfir sýningin „Hönnun 2009“ á Kjarvalsstöðum sem er á vegum Hönnunarmiðstöðvar Íslands og Listasafns Reykjavík. Hönnunarsjóður Auroru kynnir þar til leiks „Vaxtarsprota“ íslenskrar hönnunar, 5 upprennandi og efnilega hönnuði sem sýna verk sín á sýningunni en sá hluti sýningarinnar er fyrsta opinbera verkefni sjóðsins. Sýningin er hluti af Listahátíð Reykjavíkur.

Næsta úthlutun úr sjóðnum verður á haustmánuðum.
Þeir sem fengu úthlutaðan styrk að þessu sinni eru:

HUGRÚN ÁRNADÓTTIR OG MAGNI ÞORSTEINSSON www.kronkron.com
KRON by KRONKRON
skólína
Styrkurinn er veittur til sýningahalds í Kaupmannahöfn, París og Mílanó haustið 2009

JÓN BJÖRNSSON www.bjoss.com
Flower Eruption
Vasar steyptir úr íslenskum sandi
Styrkur til vöruþróunar Flower Eruption

GUÐRÚN LILJA GUNNLAUGSDÓTTIR www.bility.is
Líkkistur og duftker úr pappamassa
Styrkurinn er veittur til frumgerðasmíði og tilrauna og rannsóknarvinnu

KATRÍN ÓLÍNA www.katrin-olina.com
Styrkur er veittur til uppbyggingar hönnunarfyrirtækis og kynningarstarfs.

LINDA BJÖRG ÁRNADÓTTIR www.lindabjorgarnardottir.com
Scintilla – heimilistextíll
Styrkur til sýningahalds hjá Martine Sitbon í París í september nk. og kynningu í tengslum við það.

SARA MARÍA JÚLÍUSDÓTTIR www.dontbenaked.com
NAKTI APINN
Styrkur til að þróa og efla framleiðslu hönnunar hennar.

Vík Prjónsdóttir www.vikprjonsdottir.com
Brynhildur Pálsdóttir, Egill Kalevi Karlsson, Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir, Hrafnkell Birgisson, Þuríður Rós Sigurþórsdóttir
Styrkur til vöruþróunar.

Samstarfsverkefnin eru:

HÖNNUNARSÝNINGIN „ ÍSLENSK HÖNNUN 2009“ – „VAXTARSPROTAR“
Samstarfsaðili: Hönnunarmiðstöð Íslands og Listasafn Reykjavíkur www.honnunarmidstod.is
Sýningin „Íslensk hönnun 2009“ á Kjarvalsstöðum er á vegum Hönnunarmiðstöðvar Íslands og Listasafns Reykjavíkur. Hönnunarsjóður Auroru kynnir þar til leiks „Vaxtarsprota“ íslenskrar hönnunar, 5 upprennandi og efnilega hönnuði sem sýna verk sín á sýningunni en sá hluti sýningarinnar er fyrsta opinbera verkefni sjóðsins. Sýningin er hluti af Listahátíð Reykjavíkur.
“Vaxtarsprotarnir”eru:
Dagur Óskarsson www.dagur.is
Jón Björnsson www.bjoss.com
Friðgerður Guðmundsdóttir www.fridgerdur.com
Sóley Þórisdóttir www.soleythoris.com
Þórunn Árnadóttir www.thorunndesign.com

LETURGERÐ OG MERKI HÖNNUNARSJÓÐS AURORU
Samstarfsaðili: Gunnar Þór Vilhjálmsson www.gunnarvilhjalmsson.net
Letrið er endurgerð á letrinu Golden Type, sem William Morris teiknaði fyrir forlagið sitt Kelmscott Press. Hann notaði það í bókinni Sidonia the Sorceress sem hann gaf íslensku þjóðinni (Landsbókasafninu) í október 1894. Sú bók er hugsuð sem nokkurskonar „design manual“ fyrir Hönnnunarsjóð Auroru, þar sem horft verður til leturs, leturmeðferðar, framsetningu og litavals. Letrið teiknaði Morris eftir stafagerð sem Nicolas Jenson gerði í Feneyjum 1475, Laertis, en það hefur verið fyrirmynd prentstafa í Latneska/Roman stafrófinu allt til dagsins í dag. Morris var mikill aðdáandi Íslenskra fornbókmennta, kom í tvær heimsóknir til Íslands og ferðaðist um landið á hestbaki, 1871 og 1873. Vinnuheiti letursins er GOLDEN AURORA.