Kraftur

Ár
Fjárhæð
Svæði
Samstarfsaðilar
2016
ISK 3.008.000
Ísland

Hrossaraekt.is

Kraftur er stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þeirra. Meginmarkmið Krafts eru að halda úti jafningjastuðningi, hagsmunagæslu, öflugri fræðslu og samveru á jafningjagrunni, auk þess að veita hagnýtar upplýsingar og stuðla að samvinnu félagasamtaka, heilbrigðisstarfsmanna og annarra sem koma að málefnum þeirra er tengjast sjúkdómnum.

Hrossaraekt.is er upplýsingaveita um allt það sem snýr að ræktun íslenskra hrossa, bæði hérlendis og erlendis. Á hverju ári standa þau fyrir stóðhestasýningu þar sem seldir eru happdrættismiðar og ágóðinn af happdrættinu rennur til góðra mála. Árið 2016 fór Hrossaraekt.is þess á leit við Auroru að koma að söfnuninni, sem styrkti Kraft og Neistann, styrktarfélag hjartveikra barna.

Aurora lagði fimm milljónir króna í söfnunina í upphafi og tilkynnti jafnframt að Aurora myndi leggja krónu á móti hverri krónu sem safnast myndi með sölu happdrættismiðanna. Í heildina lagði Aurora 6.016.000 kr. í söfnunina sem síðan var skipt til helminga milli félaganna tveggja.

Framlag Auroru til Krafts var gert í minningu Einars Öders, mikils hestamanns sem lést á árinu 2015.